Um hönnuðinn

Ragnhildur Sif Reynisdóttir er íslenskur gull- og silfursmiður auk þess að vera lærður skartgripahönnuður.


Ragnhildur Sif stundaði nám í gull og silfursmíði hjá föður sínum, Reyni Guðlaugssyni gullsmíðameistara í Gull og Silfursmiðjunni Ernu ehf. Hún lauk sveins og meistaragráðu í gullsmíði frá Tækniskólanum í Reykjavík. Árið 2006 lauk Ragnhildur svo námi í skartgripahönnun frá University of Central England, School of Jewellery, Birmingham. Að því búnu var náminu framhaldið í Sheffield Hallam University þar sem Ragnhildur útskrifaðist með MA gráðu í hönnun sem lýtur að málmsmíði og þá sérstaklega skartgripum. Auk þessa hefur hún sótt fjölda námskeiða bæði hér heima og erlendis er tengjast hönnun og smíði.

Ragnhildur sækir efnivið og hugmyndir í hönnun sína að miklu leyti til heimahaganna, æsku sinnar og íslenskrar náttúru. Indversk skartgripagerð, sem er ein sú elsta í heimi er Ragnhildi jafnframt hugleikinn og verið henni þannig að sama skapi innblástur. Ragnhildur er gift Gísla Sigurðssyni Sjúkraþjálfara og er þriggja barna móðir. Hún á tvær stelpur, þær Hlín og Eglu Sif og einn strák, hann Gauta Þór. Árið 2001 stofnaði Ragnhildur Sif, „SIF“ skartgripi og hefur unnið að uppbyggingu fyrirtækisins síðan.

Skartgripir hennar henta fólki á öllum aldri, tilvalið í fermingagjafir, afmælisgjafir, útskriptagjafir, morgungjafir, tækifærisgjafir ofl.